Lög KSS

Lög KSS
-samþykkt á aðalfundi félagsins 5. apríl 2014-

1.grein
a) Félagið heitir Kristileg skólasamtök, skammstafað KSS.
b) Félagið er aðili að Kristilegu skólahreyfingunni, skammstafað KSH.

2.grein
Félagið bindur starf sitt og boðskap við fagnaðarerindið um Jesú Krist, son Guðs, er gaf sjálfan
sig fyrir syndir vorar, reis aftur upp frá dauðum, oss til réttlætingar samkvæmt heilagri ritningu
og játningarritum Evangelísk-Lútherskrar kirkju.

3.grein
Félagið vinnur að eflingu og útbreiðslu kristinnar trúar meðal ungs fólks á aldrinum 15-20 ára.
Aldur miðast við aldursár.

4.grein
a) Allir á aldrinum 15-20 ára, geta verið félagsmenn ef þeir uppfylla skilyrði 4.gr. lið b. Aldur
skal miða við aldursár.
b) Allir félagsmenn gangast undir lög félagsins og skuldbinda sig til að flytja ekki annan
boðskap í nafni þess en þann, er félagið hefur bundið sig við í 2. grein.
c) Stjórn félagsins hefur heimild til að fella af meðlimaskrá nöfn þeirra sem ekki hafa sótt neinn
félagsfund í heilan vetur, svo og þeirra sem breyta gegn anda félagsins á alvarlegan hátt.

5.grein
a) Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum sem skulu vera kosnir á aðalfundi. Stjórn
situr í eitt ár í senn.
b) Í stjórn félagsins má ekki kjósa aðra en þá sem játa persónulega trú samanber 2. grein.
c) Stjórnir KSH, KFUM & KFUK skipa sameiginlega einn fulltrúa í stjórn KSS og einn til
vara. Fulltrúinn sé aðeins áheyrnarfulltrúi og skal vera skipaður fyrir 30. apríl ár hvert.
d) Stjórnin skipar með sér verkum og annast framkvæmdir á gerðum félagsins. Ber hún einnig
ábyrgð á gerðum sínum fyrir aðalfundi.
e) Stjórnin afhendir hverjum þeim félagsmanni, er æskir þess, afrit af félagslögunum.

6.grein
a) Aðalfundur skal haldinn í apríl ár hvert og skal boða til hans með minnst viku fyrirvara.
b) Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir sem fullnægja ákvæðum 4. greinar lið a) og hafa verið
skráðir félagsmenn að minnsta kosti frá 20. október árið áður en
aðalfundur fer fram. Ber þeim að fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru til
félagsmanna í 4. grein lið a.
c) Kjörgengi í stjórn KSS hafa allir atkvæðisbærir félagsmenn sem uppfylla
skilyrði 6.gr. lið b. Nái félagsmaður á tuttugasta aldursári kjöri skal hann
halda félagsstöðu sinni fram að næsta aðalfundi.
d) Kjörnefnd tveggja manna skal skipuð fyrir 15. mars. Stjórnin útnefnir annan en stjórnir KSH,
KFUM og KFUK hinn. Nefndarmenn séu utan stjórnar KSS.
e) Fyrir 15. mars gerir stjórn KSS skrá yfir þá félagsmenn sem atkvæðisrétt hafa á næsta
aðalfundi. Afrit af skránni skal afhenda kjörnefnd svo fljótt sem auðið er, ásamt eintaki af
lögum félagsins.
f) Kjörnefnd tekur á móti uppástungum félagsmanna um menn á kjörlista.
g) Kjörnefnd stýrir stjórnarkjöri á aðalfundi.
h) Kosnir skulu af kjörseðli 5 menn í stjórn. Kosning sé skrifleg.
i) Aðalfundur kýs einn skoðunarmann reikninga og einn til vara.
j) Fráfarandi stjórn leggur fram ársskýrslu á aðalfundinum og sé hún undirrituð af ritara og
formanni, þegar aðalfundur hefur samþykkt hana. Einnig séu lagðir fram endurskoðaðir
ársreikningar og séu þeir undirritaðir af gjaldkera. Aðalfundargerðin skal rituð í sérstaka bók
og undirrituð af formanni og ritara.
k) Á aðalfundi skal kjósa um breytingar á lögum þessum. Tillögur félagsmanna um
lagabreytingar skulu berast stjórn félagsins innan viku frá því boðað er til aðalfundar. Skal
stjórnin sjá til þess að félagsmönnum gefist kostur á að kynna sér lagabreytingatillögur fyrir
aðalfund. Með samþykki aðalfundar má þó félagsmaður bera upp breytingartillögu á aðalfundi,
enda sé hún vel kynnt fyrir fundarmönnum.

7.grein
Fé það, sem félaginu kann að áskotnast, er lagt í sjóð, sem standi straum af kostnaði við rekstur
félagsins. Sjóður þessi er nefndur félagssjóður í lögum þess. Eigi má ávaxta félagssjóð nema í
bönkum, sparisjóðum og með ríkistryggðum verðbréfum.

8.grein
Leggist Kristileg skólasamtök niður af einhverjum ástæðum skulu eignir þeirra faldar stjórn
KSH til varðveislu þar til stofnað er annað félag á sama grundvelli (samanber 2. grein, 3. grein
og 5. grein lið b).

9.grein
Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi, og þá með 70% greiddra atkvæða. Þó má alls
ekki breyta 2. grein, 4. grein lið b), 5. grein lið b), 8. grein og 9. grein, né öðru í ósamræmi við
þær.