Hvað er KSS?
KSS er félag fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára. Félagið leggur áherslu á vináttu, góðan félagskap og kristna trú.
Vikulegir KSS-fundir
Félagið stendur fyrir vikulegum samverum yfir vetrartímann. Við hittumst í húsi KFUM og K að Holtavegi 28, 104 RVK kl. 20:30. Þar syngjum við saman kristilega söngva, biðjum og hlustum á ræðu um eitthvað tengt kristinni trú. Ekki má gleyma leikjum og skemmtiatriðum sem lífga upp á samveruna. Eftir KSS-fundi er svo alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast fram eftir kvöldi. Vertu með! Þú sérð ekki eftir því!
Skólamót tvisvar á ári
KSS heldur skólamót tvisvar á ári, yfirleitt í Vatnaskógi. Haustskólamót í byrjun október og vorskólamót í um bænadagana fyrir páska. Á skólamótum eru frábær tækifæri til að kynnast nýju fólki betur. Eins og á fundunum leggjum við mjög mikið upp úr skemmtun og góðum félagskap. En áherslan á kristna trú og fræðslu um hana er aldrei langt undan.
Viltu styrkja starfið?
Stjórn KSS
Stjórn KSS samanstendur af ungu fólki úr félaginu. Þau er kosin til eins árs í senn á aðalfundi á vorin. Hver tekur við af þeim? Kannski þú?

Gabríel Bjarmi Jónsson
Formaður

Sólný Sigurðardóttir
Gjaldkeri

Dagmar Edda A Guðnadóttir
Ritari

Kristbjörg Katla Hinriksdóttir
Kynningarfulltrúi

Vésteinn Gunnarsson
Kynningarfulltrúi
Skólapresturinn
Matthías Guðmundsson skólaprestur er starfsmaður Kristilegrar skólahreyfingar (regnhlífasamtök sem KSS er stofnaðili að). Hann kemur reglulega á KSS-fundi og hjálpar stjórninni að skipuleggja og halda úti félagsstarfinu. Allir þáttakendur og félagsmenn geta leitað til hans með spurningar, persónuleg vandamál og annað. Hann vill glaður hjálpa!

Matthías Guðmundsson
Skólaprestur



